Skip to product information
1 of 7

others-iceland

Svunta, röndótt drapplitaður/hvít

Svunta, röndótt drapplitaður/hvít

Regular price 4.900 ISK
Regular price Sale price 4.900 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Handofin svunta úr 100% bómull frá vefstofu okkar í Jashore, Bangladess.

Svuntan er 86 cm há og 75 cm breið. Hún hefur stillanlega hálsól og langt mittisband sem hægt er að binda að framan eða aftan, eftir því sem kokkurinn vill.

Góður vasi er framan á svuntunni svo hægt sé að geyma ýmsa hluti. Það er handhægur hanki til að hengja viskastykkið í – auðvelt aðgengi fyrir kokkinn.

Efnið í svuntunum er framleitt í vefstofu Others í Jashore, Bangladess. Efnið er ofið í höndunum á stórum handknúnum vefstólum – handverk sem á sér langa sögu. Þekkingin hefur borist frá kynslóð til kynslóðar. Mörg af munstrunum í efnunum eru mjög flókin og undirbúningsvinnan tekur langan tíma áður en hægt er að hefjast handa við framleiðsluna.

Þegar búið er að vefa efnin, eru rúllurnar bornar inn á saumastofuna í næsta rými, og úr efnunum eru saumaðar nytsamlegar og fallegar vörur í hæsta gæðaflokki.

Vinnan við framleiðsluna hefur gert það að verkum að einstaklingar hafa fengið starf og tekjur í gegnum félagslegt starf Hjálpræðishersins sem berst gegn fátækt og mansali.
Með góðum vinnuaðstæðum og sanngjörnum launum skapast ný tækifæri fyrir heila fjölskyldi. Launin eru oft notuð til að m.a. bæta lífsskilyrði, kaupa nauðsynleg lyf eða skólabúninga fyrir börnin.

View full details