Skip to product information
1 of 3

others-iceland

Hitaplatti fyrir potta og pönnur

Hitaplatti fyrir potta og pönnur

Regular price 1.900 ISK
Regular price Sale price 1.900 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Handfléttaðir og praktískir hitaplattar úr basti frá Others í Jhenaidah, Bangladess.  

Plattinn er 44x30 cm og er um 1 cm þykkur. 

Hitaplattinn  veitir góða vörn gegn heitum pottum og pönnum. Hann er nógu stór til að hægt sé að hafa 2 potta eða stóra pönnu á honum.  

Hitaplattinn er búinn til í framleiðslustöð Others í Jhenaidah, Bangaldess. Hann er búinn til af konum sem Others hefur komist í samband við í gegnum heilsugæslu Hjálpræðishersins. Heilsugæslan einblínir á bólusetningu við berklum og upplýsingagjöf varðandi hiv/aids og getnaðarvarnir.  

Konurnar hafa fengið starf og tekjur í gegnum félagslegt starf Hjálpræðishersins sem berst gegn fátækt og mansali. Með góðum vinnuaðstæðum og sanngjörnum launum skapast ný tækifæri fyrir heila fjölskyldi. Launin eru oft notuð til að m.a. bæta lífsskilyrði, kaupa nauðsynleg lyf eða skólabúninga fyrir börnin. 

Hitaplattinn er fléttaður í höndunum úr basti sem er reyrplanta sem vex villt við árbakka og safnað er þegar stráin eru nógu löng til að nota í framleiðsluna. Tæknin byggir á handverkshefðum svæðisins og þekkingin hefur borist frá kynslóð til kynslóðar. 

View full details