Skip to product information
1 of 5

others-iceland

Viskastykki, tíglar, grátt og rautt 2 stk.

Viskastykki, tíglar, grátt og rautt 2 stk.

Regular price 4.800 ISK
Regular price Sale price 4.800 ISK
Sale Sold out
Tax included.

Handofin viskastykki framleidd af Others í Jashore, Bangladess.

Þessi fallegu viskastykki eru úr 100% bómull og eru 60x40 cm. Viskastykkin koma tvö saman í pakka, eitt rautt og eitt grátt.

Þessi viskastykki eru þykk og í hæsta gæðaflokki. Þau drekka vel í sig þegar leirtauið er þurrkað og nýtast sem lítill skrautmunur í eldhúsinu þegar þau eru ekki í notkunn. Munstrið í tígla-viskastykkjunum er bygt á gömlu og hefðbundnu bengölsku munstri sem er flókið og háþróað munsturkerfi.

Efnið í viskastykkjunum er framleitt í vefstofu Others í Jashore, Bangladess. Efnið er ofið í höndunum á stórum handknúnum vefstólum – handverk sem á sér langa sögu. Þekkingin hefur borist frá kynslóð til kynslóðar. Mörg af munstrunum í efnunum eru mjög flókin og undirbúningsvinnan tekur langan tíma áður en hægt er að hefjast handa við framleiðsluna.

Þegar búið er að vefa efnin, eru rúllurnar bornar inn á saumastofuna í næsta rými, og úr efnunum eru saumaðar nytsamlegar og fallegar vörur í hæsta gæðaflokki.

Vinnan við framleiðsluna hefur gert það að verkum að einstaklingar hafa fengið starf og tekjur í gegnum félagslegt starf Hjálpræðishersins sem berst gegn fátækt og mansali.
Með góðum vinnuaðstæðum og sanngjörnum launum skapast ný tækifæri fyrir heila fjölskyldi. Launin eru oft notuð til að m.a. bæta lífsskilyrði, kaupa nauðsynleg lyf eða skólabúninga fyrir börnin.

View full details